Örlögin höguðu því þannig að hann skráði sig í kvikmyndaskóla þegar hann var við það að stimpla sig út úr námi. Þrennum Edduverðlaunum síðar er Garðar Örn Arnarson einn afkastamesti kvikmyndagerðamaður Íslands og brautryðjandi þegar kemur að gerð íþróttaefnis á Íslandi.
Hann er einn harðasti Keflvíkingur landsins og finnst hvergi betra að vera en í bítlabænum. Sem strákur flutti hann til Hafnafjarðar en hélt þú áfram að æfa körfubolta í Keflavík og mætti á alla leiki sem vatnsberi.
Hann er guðfaðir körfuboltakvölds og hefur gert heimildamyndir um Grindavík, Jón Arnór Stefánsson og Örlyg Sturluson, svo nokkrar séu nefndar.